Leikir föstudagsins, gisting og tjaldsvæðið. Uppfærð Handbók!

Sæl og heil

Búið er að uppfæra Handbók mótsins með upplýsingum um leiki föstudagsins, gistingu liðanna og tjaldsvæði KA-hópsins. Hér er hlekkur sem vísar á Handbókina...

Helstu tíðindin eru að drengirnir gista í Grundarskóla (sama skóla og í fyrra) og tjaldsvæðið er á Safnarflöt (ekki sama og í fyrra). En þetta er allt að finna í Handbókinni

Biðjum liðstjóra að kynna sér vel tímasetningar sinna liða, s.s. fyrsta leik, liðsmyndatöku og kvöldmatartímann á föstudaginn. Tímasetningar fyrir laugardaginn koma í framhaldi af farastjórafundi á föstudagskvöldinu. 

Svona að lokum... eru margir sem ætla að nýta sér gistingu eða tjaldsvæðið aðfaranótt föstudagsins? Hendið í comment hér að neðan ef svo ber við.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is