Leiða inná gegn Keflavík!

Meistaraflokkurinn okkar spilar gegn Keflavík á Akureyrarvelli laugardaginn 4. júní kl. 14:00. Strákarnir í 7. fl eru svo heppnir að þeir fá að leiða inná.

Mæting er kl. 13:40 fyrir neðan stúkuna.

Drengirnir eiga að mæta í gulri KA treyju og helst bláum stuttbuxum og gulum sokkum enda er spáð frábæru veðri á morgun.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is