Æfingar hefjast aftur!

Við byrjum aftur æfingar á morgun, þriðjudag, eftir stutt frí.

Stelpur fæddar 2008 færast upp í 6. flokk og munu æfa saman með 2007 frá og með morgundeginum.

Æfingartafla vetrarins er:
Þriðjudagar kl. 15-16
Fimmtudagar kl. 15-16
Laugardagar kl. 11-12

Við æfum út september á KA vellinum áður en við tökum annað stutt frí og færum okkur svo inn í Bogann um miðjan októbermánuð.

Þjálfarar í vetur verða Skúli Bragi, Andri Freyr og Ágústa Kristins. 

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is