KA-dagurinn er á laugardaginn!

Á laugardaginn kemur, 21. maí, mun KA-dagurinn vera haldinn hátíðlegur. Fjörið hefst 11:30 upp á KA-velli.

Mikið verður um fjör en knattspyrnuþjálfarar ætla að stilla upp ýmsum knattþrautum á gervigrasinu til þess að leyfa krökkunum að spreyta sig á. Þá verða grillaðar pylsur ofan í mannskapinn og svali að drekka með

Fulltrúar frá yngriflokkaráði knattspyrnudeildar verða á staðnum til þess að aðstoða fólk að skrá krakkana á námskeiðin okkar í sumar og æfingatafla sumarsins verður til sýnis.

Toppmenn og Sport ætla að vera með útstillingu á Diadora knattspyrnuvörum og í leiðinni verður 15% afsláttur af öllum Diadora-vörum í búðinni hjá þeim fram á þriðjudag. Þá verða einnig til sölu gamlar KA-treyjur á vægu verði.

Leikmenn meistaraflokks kíkja í heimsókn en þeir leika síðan gegn Huginn kl. 14:00 á KA-velli og er frítt inn á þann leik fyrir 16 ára og yngri.

Hlökkum til þess að sjá ykkur sem flest, gul og glöð á laugardaginn.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is