Iðkendum KA boðið á stærsta leik sumarsins

Kæru forráðamenn og foreldrar
Iðkendum KA er boðið frítt á völlinn að sjá stærsta leik sumarsins í InKassodeildinni. KA þarf á stuðningi allra að halda og eru allir hvattir til þess að mæta syngjandi glaðir, gulklæddir og hvetja sitt lið til sigurs!

KA og Þór mætast á Akureyrarvelli kl. 16:00 á Laugardaginn. Við hvetjum alla KA-menn að koma gulklædda á völlinn og hvetja sitt lið.

Þessi lið mættust tvisvar sinnum í fyrrasumar og vann KA báða leikina: 1-0 og 3-0. KA er í efsta sæti InKassodeildarinnar með 23 stig en Þór er fjórum stigum á eftir KA með 19 í 2.-3. sæti. Leikurinn á laugardaginn er því gríðarlega þýðingarmikill.

Leikur KA og Þórs á Akureyrarvelli í fyrrasumar var hin mesta skemmtun en þrátt fyrir aðeins eitt mark þá fór rautt spjald á loft og mikil barátta einkenndi leikinn. KA-menn voru gríðarlega fjölmennir og áberandi í stúkunni og veittu liðinu þann stuðnings sem þurfti til þess að sigla stigunum þremur heim og er það von að hið sama verði upp á teningnum á laugardaginn.

Mætum tímanlega á völlinn til þess að forðast biðraðir og hvetjum KA til sigurs. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is