Úti hér eftir

Við stefnum á að vera úti hér eftir á KA-vellinum. Stelpurnar eiga því að koma klæddar eftir veðri og muna að það er alltaf betra að klæða þær of vel en of illa. 

Næstu æfingar:
Mánud. 26. maí 16:15-17:00
Mánud. 2. júní 16:15-17:00

Mánudaginn 9. júní byrja sumaræfingar hjá okkur. Þá ætlum við heldur betur að gefa í og æfa þrisvar sinnum í viku.

Æfingar verða í sumar á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:15-17:00.

Ef það eru einhverjar spurningar þá hafið þið samband.

kv. Alli, Harpa og Rakel 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is