Foreldrafundur og æfingaleikir

Foreldrafundur fyrir stelpur fæddar 2009 og 2010 verður í KA-heimilinu þriðjudaginn, 13. júní kl. 20:15. Farið verður yfir starfið, þjálfarar flokksins kynntir og fjallað verður um Stefnumót KA sem fram fer helgina 24.-25. júní. Skráningu á mótið lýkur á morgun, þriðjudag.

Frí verður á æfingu á miðvikudaginn, 14. júní og verður í stað þess tekið létta æfingaleiki við 8. flokk karla hjá KA kl. 16:30-17:15 sama dag. Hvetjum stelpurnar til þess að mæta í KA treyju ef þær eiga. Skipt verður í lið á staðnum.

Mbkv, Anton Orri



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is