Bingó í Naustaskóla á sunnudag

Sælir foreldrar/forráðamenn. Það verður bingó sunnudaginn 3. desember í Naustaskóla á vegum yngriflokkaráðs, en þetta er fjáröflun fyrir m.a. rútunni góðu sem við erum svo dugleg að nýta okkur. Það er verið að biðja foreldra um að taka þátt í bakstri og vonum við að flestir hafi tök á því. Það kemur í hlut foreldra stelpna að koma með eitthvað ósætt, s.s. kleinur, smurbrauð, brauð, ostakökur...

Vinsamlegast skrifið í athugasemd (undir póstinum hjá Birnu á Facebook-síðu flokksins) hvað ykkar stelpa mun mæta með á hlaðborð. Mæta skal með veitingar sunnudaginn 3. desember kl. 12:30 í Naustaskóla. Bingóið byrjar svo kl. 14.

Einnig er verið að leitast eftir foreldrum til þess að hjálpa til á bingóinu og þeir sem hafa tök á því senda póst á yngriflokkarad@gmail.com.

Það eiga enn margir eftir að greiða mótsgjaldið fyrir Stefnumótið. Hægt er að finna upplýsingar um það í fyrri frétt á heimasíðu 7. flokks kvenna.

Með fyrirfram þökk og með von um góðar undirtektir, 
Foreldraráð 7. fl kvk.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is