Æfingavikan, hópmynd og frí

Allar æfingar í vikunni verða á San Siro (grasvöllur sunnan við KA-svæðið/austan við Lundarskóla) vegna Coerver skólans sem fram fer nú í vikunni. Á miðvikudaginn hvetjum við allar stelpur til þess að mæta í gulu á æfingu (það er þó engin skylda) þar sem við ætlum að taka hópmynd af okkar glæsilega flokk hjá 7. kvenna. Frí verður á æfingu á föstudag fyrir Stúlknamótið næstu helgi.

Upplýsingar um Stúlknamót KA mun birtast inn á síðunni í vikunni auk þess sem liðsskipan og leikjadagskrá kemur hér inn. Meiri hluti þeirra sem hafa verið að æfa síðustu vikur eru skráðar á mótið. Það skal hafa samband við aðalþjálfara sem fyrst ef gleymst hefur að skrá sína stelpu.

Minnum einnig á Facebook-síðu flokksins, þar koma inn allar fréttir af heimasíðunni auk þess sem hægt að skrá sig á vaktir á mótinu.

https://www.facebook.com/groups/961690593977322/

Mbkv, Anton Orri

 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is