Smá hjálp á Stefnumóti :)

Margar hendur vinna létt verk og það ætlum við að sýna í verki á morgun á Stefnumóti KA.

Annars vegar þá vantar tvo foreldra úr 6. fl til að hjálpa til við að útdeila pizzum kl. 14:30-15:45 fyrir 7. flokk. Strákarnir í 6. fl fá pizzu þegar þeir eru búnir að spila og höfum við mannað þá vakt. Best er að senda tölvupóst á alli@ka.is ef þið getið hjálpað til.

Hins vegar þá ætlum við að biðja KA-foreldra að hjálpa okkur þegar síðustu leikir eru búnir að taka allt rusl úr stúkunni og svæðinu og henda því. Þannig gerum við Bogann aftur sómasamlegan eftir mótið á stuttum tíma.

Einnig ef einhverjir geta hjálpað okkur á sunnudaginn með hlaðborðið væri það vel þegið, einnig má senda tölvupóst á alli@ka.is ef svo er.

Með fyrirfram þökkum!




Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is