Orkumótið 2018

Skráning á Orkumótið í Vestmannaeyjum 27-30.júní 2018.

  • Við viljum biðja foreldra drengja á eldra ári (f. 2008) að skrá þá til leiks á mótið ef þeir ætla með til Vestmannaeyja.
  • Vinsamlegast skráið í comment hér að neðan a) nafn drengs, b) kennitölu, c) nafn forráðamanns, d) tölvupóst forráðamanns.
  • Skráningarfrestur er til 20. janúar 2018.
  • Drengir sem æfa einungis yfir sumartímann eru að sjálfsögðu velkomnir að skrá sig á mótið

Það sem var rætt á foreldrafundinum um Orkumótið var m.a.

  • Athuga kostnað við flug, Aku-Ves. Gæti þýtt 30 þús. auka kostnaður en styttir ferðalagið um 2 daga. Heyra þarf í nágrannaliðum um samnýtingu á fluginu.
  • Í fyrra var farið með rútu. Kostnaðurinn var kr. 55.000. Farið 08:00 á miðvikudegi og komið 22:00 á sunnudegi.
  • Foreldrar sem ætla með til eyja og ætla að fara með Herjólfi þurfa að skrá sig sjálf um borð (bíl og tengivagna). Það opnar fyrir skráningu í byrjun febrúar á vefnum.
  • Umræður um bíla og akstur í Eyjum fyrir liðin. Horft til þess að leigja bíl per lið. 
  • Foreldraráð og fjaröflunarnefnd munu koma upplýsingum á framfæri í gegnum heimasíðu og facebook varðandi skipulagningar Orkumótsins. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is