Fáðu fréttir og tilkynningar sendar með tölvupósti
Flýtilyklar
Gátlisti fyrir Króksmótið
Sælir foreldrar
Leikjaplan kemur inn annað kvöld og munum við setja það hér inn á síðuna. Einnig er gott að fylgjast með öllu inn á: https://kroksmot.wordpress.com/
Samlokumál eru klár.. 2 samlokur á laugardag og 2 Svalar/Hleðsla og 2 samloku á sunnudag og 2 Svalar/Hleðsla.. þannig að þið megið endilega koma með fleiri drykki handa ykkar dreng eða bara nýta vatnið. Það verður svo vöfflukaffi upp í skólanum eftir kvöldvökuna. Þið megið endilega láta vita ef að einhverjir foreldrar hafa tök á að koma með samlokugrill eða vöfflujárn með sér? Við þurfum 4-5 samlokugrill og 4-5 vöfflujárn. Megið skrifa hér fyrir í athugasemdir ef þið hafið tök á að koma með annað hvort með ykkur:)
Það er einhver rigning í loftinu þannig að endilega hafa nóg af auka fötum.
Hér er það helsta sem þarf að koma með:
- Dýna / vindsæng – sæng/svefnpoki, lak, koddi
- Tannbursti og tannkrem
- Handklæði og sundföt+sundpoki/bakpoki
- Náttföt
- Nærföt
- Auka föt og auka sokkar
- Keppnisföt – KA-stuttbuxur, KA treyja og gulir sokkar.
- Takkaskór – legghlífar-vatnsbrúsi
- Klæðnaður eftir veðri- hlý föt
- Teppi undir vindsæng- svo það ískri ekki í þeim
- Spil-blöð eða annað til afþreyingar.
- Dýnupumpur þeir sem eiga.
- Hollt og gott nesti.
- MUNA AÐ MERKJA ALLT MJÖG VEL!!!
-Fótboltaspil/möppur og tölvuspil eru ekki leyfð og er nammi og gos er á bannlista
Foreldrar verða að sjá til þess að koma drengjunum fyrir í skólanum, hafa keppnisföt, sundföt og utanyfir föt tilbúin. Of mikið fyrir farastjórana að þurfa að pumpa í allar vindsængurnar... viljum nú ekki hafa þau alveg vindlaus alla helgina hóhóhó;)
Foreldrar verða að vera sýnilegir og hjálpa til á milli leikja. Gott ef að einhverjir pabbar vilji taka að sér sundferðina því það er mjög erfitt fyrir kvk fararstjórana að geta ekki farið með þeim í klefa því það eru svo fáránlega margir í sundi í einu
Þeir sem ætla að gista taka við liðunum eftir kvöldmat og hjálpa til við að koma þeim í ró
Ég vil ítreka skilaboðin frá fararstjórunum að koma með teppi með til að setja undir vindsængina svo að það ískri ekki í þeim. Einnig vil ég benda á að ÖLL FÓTSBOLTASPIL ERU BÖNNUÐ, geyma möppuna heima.
Bkv
Foreldraráð
En er einhver sem vill fá að gista í skólanum í kvöld? Hann er ekki opinn þannig að ég þarf að fá að vita það svo ég geti látið opna hann fyrir okkur.
Leit
Skráning á póstlista
Fréttir frá KA-sport.is
- 29.09.2021 Bikarveislan framundan hjá KA/Þór
- 28.09.2021 Nökkvi og Þorri framlengja út 2024
- 28.09.2021 Fjórar frá KA/Þór í A-landsliðinu
- 28.09.2021 Steinþór Már bestur á lokahófi KA
- 28.09.2021 Opinn félagsfundur um málefni Spaðadeildar KA