Fáðu fréttir og tilkynningar sendar með tölvupósti
Flýtilyklar
Foreldrafundur í kvöld
Í kvöld verður foreldrafundur hjá 3. og 4. fl kvenna kl. 19:30 í KA-heimilinu. Þar mun aðalstjórn fara yfir framtíð stelpnanna í KA.
Aðalstjórn Knattspyrnufélags Akureyrar samþykkti á fundi sínum á mánudaginn að endurnýja ekki samninga milli KA og Þórs um sameiginlega meistaraflokka kvenna í handknattleik og knattspyrnu sem verið hafa í gildi frá árinu 2001.
Knattspyrnufélag Akureyrar er stórt og öflugt félag og því hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu misserum. Iðkendum hefur fjölgað gríðarlega undanfarin ár, ekki síst í kvennaflokkum í knattspyrnu og því telur aðalstjórn rökrétt á þessum tímapunkti að stíga skrefið til fulls og byggja upp kvennaknattspyrnu innan vébanda félagsins frá 8. flokki og upp í meistaraflokk. Aðalstjórn KA telur að þessi ákvörðun muni efla og styrkja stöðu knattpyrnu kvenna á Akureyri og gefa fleiri stúlkum tækifæri á að iðka sína íþrótt upp alla flokka.
Eftir sem áður mun félagið standa að rekstri allra flokka kvenna í handknattleik.
Undanfarin ár hafa Knattspyrnufélag Akureyrar og Íþróttafélagið Þór teflt fram sameiginlegu keppnisliði í 2. flokki kvenna og meistaraflokki kvenna í knattspyrnu undir merkjum Þór/KA. Fyrir komandi keppnistímabil styður aðalstjórn KA að fyrirkomulag verði óbreytt og kvennalið spili undir merkjum Þór/KA í 2. flokki kvenna og meistaraflokki kvenna í vetur og á komandi sumri. En frá og með næsta hausti mun KA hefja rekstur 2. flokks og meistaraflokks kvenna og tefla fram liðum í báðum flokkum sumarið 2018.
Að sama skapi mun óbreytt fyrirkomulag gilda um rekstur sameiginlegs liðs KA og Þórs undir merkjum KA/Þór í handknattleik kvenna til loka yfirstandandi keppnistímabils en frá og með keppnistímabilinu 2017-2018 mun KA tefla fram handknattleiksliðum kvenna undir merkjum félagsins.
Aðalstjórn KA þakkar íþróttafélaginu Þór fyrir samstarfið til margra ára.
Leit
Skráning á póstlista
RSS straumur
- 29.09.2021 Bikarveislan framundan hjá KA/Þór
- 28.09.2021 Nökkvi og Þorri framlengja út 2024
- 28.09.2021 Fjórar frá KA/Þór í A-landsliðinu
- 28.09.2021 Steinþór Már bestur á lokahófi KA
- 28.09.2021 Opinn félagsfundur um málefni Spaðadeildar KA