Fararstjórar á Gothia cup og fleira

Sæl öll.

Hér koma fleiri upplýsingar um Gothia cup.

Flogið verður til Gautaborgar 10.júlí kl 16:10 og heim aftur þann 18.júlí kl 20:40. Við höfum því um 1 1/2 sólarhring til að jafna okkur fyrir mótið en 12.júlí er svokallaður komudagur á mótið og leikir hefjast 13.júlí.

Okkur vantar fjóra fararstjóra í ferðina. Vinsamlegast sendið Guðrúnu Unu einkaskilaboð á FB eða sendið póst á gunnajons66@gmail.com ef þið hafið áhuga á að taka starfið að ykkur. Ef margir sækja um verður reynsla af fararstjórn og félagsstarfi með flokknum látin ráða.

Aðrir foreldrar/fjölskyldumeðlimir sem áhuga hafa að fara til Gautaborgar en ekki sem fararstjórar er bent á að hafa samband við ferðaskrifstofuna Vita.

Til stendur að fá búninga fyrir krakkana. Ef einhverjir vilja aðstoða við það verkefni væri það vel þegið t.d með söfnun styrkja,auglýsinga o.þ.h.

Foreldrafundur verður haldinn í febrúar, nánar auglýst síðar.

Foreldraráð og þjálfarar 3.fl.kvk



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is