3. flokkur kvenna (bæði ár) - fjáröflun - fiskibollur og saltfiskur

Nú er komið að næstu fjáröflun sem er sala á fiskibollum og saltfiski frá Ektafiski.
1 kg. af fiskibollum er selt á kr. 1.500.
1 kg. af saltfiski er selt á kr. 2.000.
Stelpurnar fá 800 kr. út úr hverju seldu kg. af fiskibollum og 1.100 kr. út úr hverju seldu kg. af saltfiski. Ágóðinn er eyrnamerktur hverri og einni stelpu.
Vinsamlega skráið þátttöku og fjölda eininga sem hver ætlar að selja á fjésbókarsíðu flokksins eða á heimasíðunni http://fotbolti.ka-sport.is/3-fl-kvenna undir færslunni „Fjáröflun-fiskibollur og saltfiskur“ í síðasta lagi sunnudaginn 2. mars.
Afhending fer fram í Boganum eftir æfingu fimmtudaginn 6. mars.
Greiðslufrestur er veittur í allt að viku frá afhendingu.
Reikningsnúmer flokksins er: 0162-05-260300, kt: 490101-2330. MUNA að setja nafn stelpnanna í skýringu og senda póst á ingvar@landslag.is.
Kveðja 
Fjáröflunarnefndin (Ingvar, Guðrún Una, Bogga, Eiki)


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is